Litlar mýz um löndin öll....liggja nú og sofa!!

Mýzluland

15.01.2008 21:35:32 / myzlan

Ný síða...

jabb er komin með nýja síðu...

                                   www.myzla.bloggar.is

 

                                                       Kv. mýzla


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 22:21:06 / myzlan

Mánudagurinn 14 Jan. 2008

Já hjá mér er allt gott að frétta.. ég er bara að vinna hjá pabba sem stendur, erum að flísaleggja og er það bara makkmagnað.
Júhh ég er bara nokkuð hress, Sigginn er úti á sjó vá hvað ég sakna hans ótrúlega mikið. En hann er svo duglegur þessi elska, það geta sko ekki allir verið á sjó.
Vá það er næstum komið 1/2 ár hjá okkur Sigga... úfff hvað tíminn líður hratt.. það er óhætt að segja það... maður verður komin með göngugrind og milljón barnabörn áður en maður getur sagt Binkowski Aninaaq Poosriroj Gammelmark afturábak.
en jámm þetta er samt búinn að vera alveg frábært tími, búin að upplifa alveg fullt fullt saman, klífa fjöll, sigla kanó, vinna verðlaun í Karate og búa saman í öðru landi svo e-ð sé nefnt.
Svo er stefnan bara tekin á að finna sér góða vinnu, helst á Ak. finna okkur íbúð og fara svo í skóla í ágúst.
Ég hef svo sem ekki mikið meira að segja, er bara að bíða eftir því að landsleikurinn við Tékka byrji, djöfull var leikurinn magnaður í gær...  Bjarni Fritzson var að gera góðahluti, hann átti alveg magnaða innkomu í leiknum, svo var Logi Geirsson magnaður eins og vanalega... æi þeir voru nú bara allir alveg makk-magnaðir... óg vona ég bara að allt gangi upp hjá þeim bæði í kvöld og svo úti á EM. Djöfull sem ég væri til í að vera í Norge núna maður... össs hvað það er litli stemmarinn að fara á svona mót... úffff.  
En jæja þetta er orðið gott í bili.

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 16:14:42 / myzlan

nýtt ár....

Gleðilegt nýtt ár allir saman og takk fyrir það gamla. Jólin voru yndisleg, amma Sigga var hjá okkur og var það bara alveg ótrúlega gott. Mikið var spilað, hlegið og atast þessi jólin. Fór í bíó með Sigga, Bjarna og Arnari, kíktum á Ollu og rúntuðum alveg helling.
Áramótunum eyddi ég á Dalvíkinni hjá tengdó og var það mikið fjör. Þar var einnig mikið hlegið, spilað og bara mjög glatt á hjalla þar.
Svo fór Siggi minn út á sjó í gær þannig að ég er bara ein í kotinu.
Erum að leita að íbúð og ég að vinnu einnig.. vonandi bara að það gangi allt vel. Hef ekki meira að segja í bili.

                                                                                     Mýzla


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.12.2007 18:12:10 / myzlan

Gleðileg jól - Merry Christmas

Gleðileg Jól allir saman. Vonandi hafið þið það gott um jólin og áramótin. Og njótið þess að vera saman og hvafa það kósý. Veit að ég mun gera það. Setjum ferskleikann í fyrstasæti á nýju ári.

  

I send my best wishes and wishis for  merry Christmas and a happy new year. May your future be full of joy and happiness. Hopefully we will see again next year.

                           Best Wishes  Malla


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 15:41:20 / myzlan

Damn I´m good...

...jább því verður sko seinnt neitað hvað ég er ógurlega mikill snillingur... 

Í síðustuviku var okkur tilkynnt það í karate-tíma að það yrði próf núna í dag, við áttum að vera par eða tvö saman að gera æfingarnar, þetta próf fólst í því að sýna 5 högg (lemur með höndunum til skiptis) svo 5 olnbogahögg, tvö spörk á mann og tvær fellur... við vorum minnir mig 6 pör. Svo í dag tókum við prófið og auðvitað rúlluðum við Siggi þessu upp og erum því BEST í karate... vorum eina parið sem gerði ekki neina villu og kláruðum öll brögðin...  æhhh langaði bara að deila þessu með ykkur því ég er að SPRINGA ég er svo kát

                                         kveð að sinni  Mýzla Katate-drottning


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 20:29:13 / myzlan

Jæja loksins kom e-ð...

Vá hvað ég er búin að vera mikið löt við það að blogga...

En jæja það er svo sem mikið búið að ske þannig að ég hef e-ð til að blogga um. Við Siggi fórum til Svavars bróðurs og fjölsk. helgina 30 nóv til 2 des og var það alveg frábært... fengum ísl. læri að borða sem var ótrúelga gott og líka bara gott að geta verið þar. Líður svo vel hjá þeim. Þetta var síðasta langahelgin í skólanum þannig að við förum ekki meira til þeirra þetta árið... úfff hvað við eigum eftir að sakna þeirra...

En núna um helgina var svona vina-weekend og var það alveg ótrúlega skemmtilegt, þemað var MYRKUR þannig að við byrjuðum ekki í skólanum fyrr en um 16:00 á laugardaginn og voru búin um 03:00 um nóttina. Við vorum þó aðalega bara í svona allskonar leikjum, fórum í sund, og var laugin full af neonljósum og svo stokkið af stökkbrettum blindandi og svona... ótrúlega gaman... svo fórum við niður í skóla og fengum kennski í tjatjatjaaa og sviinnng... (ekki svo gaman) svo fórum við í íþr.höllina og spiluðum í myrkrinu þar... og var búið að skipta höllini í 3 velli, á einum var körfubolti, einum svona hafnarbolt og hinum svona fótbolta-spil eins og er á flestum pöbbum... hehe en jámm öll liðin fengu gló-stikk til að sjást í myrkrinu bara mismunandi á litin... og var þetta bara alveg ótrúlega gaman... og svo tók bara svaðalegt partý við eftir 03:00 já og kvöldvaturinn okkar var í myrkri og máttum við ekki sjá hvað við vorum að borða... en af bragðinu að dæma voru þetta einhveskonar pylsur...

Svo núna eru bara 12 dagar í heimkomu og ég bara get ekki beðið að koma heim bara beinnt í jólin... en ég á líka eftir að sakna þess mikið að vera ekki hérna því þetta er búið að vera alveg ótrúlega gaman og skemmtileg reynsla...

Svo eftir áramót tekur bara við fluttningur til Ak. þar sem við Siggi ætlum að búa saman...og þá er bara máið að fara að reyna að finna sér vinnu...

En jæja er að spá í að hafa þetta ekki mikið lengra í bili... þarf að fara að skrifa e-n skírslu..

Mýzla


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 22:46:15 / myzlan

Svavar Elíasson F:20.05.29 D: 25.11.07

 

Elsku afi minn. Leiðir skilja vini alla. Tárin strítt þá streima'og falla. En þitt ljós mun ávalt skína, minning þín mun aldrei dvína.

Það er sárt að komast ekki í jarðarför þína.

Ég var að tala við mömmu í símann núna í fyrradag og við vorum að rifja upp svona eitt og annað um þig. Það sem stendur uppúr í minningum mínum er það að alltaf þegar ég kom til ykkar ömmu á Furugrundina var það hversu duglegur þú varst alltaf að spila við mig.. og við gátum setið í marga tíma og spilað ólsen ólsen eða veiðimann. Og afi það sem þú gast alltaf REYNT að svindla, en þér fannst það bara svo gaman því ég varð alltaf svo ótrúlega reið... og amma kom alltaf til að róa mig niður og segja þér að hætta að stríða mér svona! Svo líka alltaf þegar ég var að fara norður með mömmu, pabba og Jóni Þór þá gafstu mér alltaf súrar lappir í nesti, bróður mínum til mikills ama. Súrar lappir voru bara eitt það besta sé ég vissi og þér fannst það svo frábært að ég væri svona vitlaus í þær.

Gaman er að muna öll ættarmótin með stórfjölskyldum ykkar ömmu, einnig allar veiðiferðirnar með þér þó þú værir nú stundum svolítið spældur ef ég veiddi meira en þú, en allt var það nú í gamni.

Öll ferðalögin sem við fórum á sumrin þegar þið amma komuð norður til okkar eru ógleymanleg. Elsku afi minn takk fyrir að vera góður og hjartahlýr afi. Elsku amma guð styrki þig í þinni sorg.

  Kv. frá Möllu í Brönderslev. Dk.


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 13:36:48 / myzlan

kjellan bara orðin tuttugu og þriggja...

Jæja ég er að reyna við þetta í þriðjaskiptið… alltaf dettur bloggiðmitt út þegar ég er að save það inni!!  
 Og vá hvað það er böggandI.
Jamm  afmælisdagurinn minn var bara mjög fínn, byrjaði reyndar alveg óhemju snemma.. Var farin að þrífa um 10 mín í 7 bara svona eins og alla aðra morgna… ekki spennó!!  Svo var bara skriðið aftur upp í rúm og kúrt þar til kl að verða 10 þá mætti maður nývaknaður og úldinn í dans.  Svo var það bara Hd.-matur eftir matinn var svo söngur og var ég búin í skólanum um tvö. Þá fórum við Siggi í rækitna og svo í ljós sem var alveg ótrúlega kósý… svo á leiðinni heim var komið við í Fötex og aðeins verslað inn og svo bara brunað í kvöldmat og á boðstólnum var áægtis buff og hvítlaukssósa. Í matartímanum var sungið fyrir mig afmælissönginn, sem betur fer var ég ennþá svo rauð í framan eftir ljósin að fólk sá vonandi ekki hvað ég roðnaði niður í rassgat við að standa þarna upp á stól eins og bjáni… ég roðnaði örugglega á rassinum ég fór svo hjá mér…  eftir matinn fór Siggi minn og bakaði fyrir mig súkkulaðiköku með BLEIKU skrauti og var hún alveg ljómandi góð hjá honum… þannig að sé það að ég þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af bakstrinum í  framtíðinni. Svo eftir mikið kökuát og mjólkurdrykkju skelltum við okkur á Júdó-æfingu og váááá hvað ég ELSKA þessa íþrótt.. er mikið að spá í að fara að æfa þegar ég kem heim, ég er reyndar búin að lofa Marek því að ég  fari að æfa.. þannig að það er kannski bara eins gott að ég standi við það.   
Annars er dagurinn bara búinn að vera mjög fínn, ég er búin að fá alveg fullt fullt af kveðjum, pakka, bréf, kossa og knús. Elsku amma mín Malla takk fyrir bréfið og pakkann..´núna verður mér sko pottþétt alltaf heitt á puttunum og í hjartanun.
Svo er bara mánuður í það að við Siggi komum hei, okkur hlakkar alveg ótrúlega mikið til… dagurinn í dag er búin að vera óskup leiðinlegur.. Það eru þrír skólar í heimsókn og ekki pláss fyrir okkur til að gera eitt né neitt og svo pirrast kennararnir yfir því að við séum ekki í tímunum með þeim… svo segir maður að það sé bara ekki pláss það verða þau eins og spurningamerki í framan og skilja alltí einu ekki ensku!!!  Annars bara allt gott í danaveldinu… alltaf að kólna og kólna veðrið… en þá er bara málið að klæða sig betur og betur…
Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili… er að vera of sein í tíma… takk fyrir allar kveðjurnar.  hafið það gott gullin mín og látið ykkur líða vel og það sérstaklega í hjartanu þá gengur allt svo mikklu betur!
                                                                    
                                                                                                                         Hilsen Malla mýzla

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 17:33:26 / myzlan

Þið eruð að djóka...

vá ég er sko búin að fá nóg hérna...  það er ekki hægt að segja það að maturinn hérna sé upp á marga fiska... maturinn hérna síðustu vikur og nú í byrjun þassarar er búinn að vera hreinn HORBJÓÐUR!!!  Á föstudagskvöldið var boðið upp á KARTÖFLUMÚS með grænmeti... jabb eins og glöggir lesendur hafa vonandi áttað sig á þá var KARTÖFLUMÚSINN aðalrétturinn.... ekki eins og við erum vön á Ísl. sem meðlæti...  það besta við þetta var það að einn pólski strákurinn sem er í skólanum hérna er búinn að vera að læra e-ð í ísl. og þegar hann kemur að borðinu segir hann "ERTU AРDJÓKA???" svo er kannski kjúklingur eða kjötbollur og þá er bara TVÆR á mann og maður er ekkert búinn að borða síðan um 12:00 og á að vera saddur af þessum líka bragðlausa viðbjóð...  svo í dag til að toppa allt komum við að kvöldverðarborðinu og í matinn eru 4 beikon á mann og tartöflur og rifnargulrætur og já e-n bragvond hvítsósa...   jjjjjjjjjaaaaaaaaaaaaaahérnahér hvað ég er orðin pirruð á þessu... MAMMA mig langar svo í Skyr og Graflax er hægt að senda þannig á milli landa???  því við erum að bugast á fæðinu hérna...  vá hvað ég hlakka bara til að koma heim um jóin og fá almenilegt að éta marrr...

 jæja er að fara að gera e-ð gáfulegt!!! 

                                                                       Mýzla


» 17 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 18:46:49 / myzlan

International dagur í NIH

jæja þá er þessi alþjóðlegidagur í skólanum loksinns búinn og við getur "slappað af"...  en þessi dagur var í einu orði bara frábær sko... við mættum í eldhúsið mis hress kl:08:00 og hófumst handa við það að útbúa hádegismat fyrir Danskinn og var boðið uppá ískensan plokkfisk, rúgbrauð sem ég bakaði og það sló líka svona bilað í gegn, harðfisk, pólska radísusúpu, gúllas og rísmjölshnullung frá kenía, svo í kaffinu var GULRÓTARKAKA ala Ólöf Ellerts, sko uppskrift frá henni sem ég bakaði og Ólöf þessi kaka sló bilað í gegn hjá danskinum sko.... allir að fá uppskrift og allt sko... reyndar af þrumaranum líka. svo í kvöldmat var tælenskur matur og það var alveg frábært hann var sko góður, svo héldum við svona skemmtikvöld sem við erum búin að vera alveg 3 vikur að plana búa til video og svona allskonar landkynningu fyrir löndin okkar og finna leiki og svona.. og þetta var allt alveg frábært og ótrúlega gaman og skemmtu allir sér vel... meira að segja danskurinn...
Í dag var maður MJÖG svo þreyttur og rétt marði það að mæta í tíma og svona... var í Júdó í dag og það er bara gaman, fékk meira að segja að slást og AUÐVITAÐ rústaði ég mótherjanum og fór hún með skottið á milli lappanna út af dýnunni á meðan ég sveif um á bleiku skýi að reyna að finna sjálfan mig aftur og lenda á jörðinni eftir þennann líka sæta sigur... minn fyrsti og EKKI sá síðast sigur!!!  En við Siggi erum að spá í að fá leifi hjá kannaranum til að taka próf í Katate og Júdó til að fá gul og jafnvel fleiri liti af beltum áður en við komum heim!! það væri bara frábært... 
Fékk reyndar svaka skell á nárann eða e-ð þannig þegar við vorum að æfa okkur í því að kasta hvort öðru og er ég svolítið aum en það grær vonandi.... en jæja ég er að verða of sein í aukatíma í Júdó!!!

                  skrifa e-ð meira seinna... hafið það gott og takk allir fyrir að vera svona dugleg við það að skilja eftir ykkur spor :haha:

                                                                      Mýzla


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 15:56:22 / myzlan

Það er ekki svo erfitt....

.. að skilja eftir sig spor hérna á síðunni... það eru núna komir yfir 130 gestir BARA í DAG!! og það skilur næstum enginn eftir sig spor... það þykir mér alveg afskaplega leiðinlegt!!  Langar að fá að vita hvaða fólk er að skoða líf mitt...  (þó svo að ég þekki örugglega ekki allt þetta fólk(130+) sem er að kíkka hérna inn).

» 7 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 10:39:17 / myzlan

Blogg....

Vááá hvað ég er orðin alveg ótrúlega löt við að blogga…
Ég veit eiginlega bara ekkert hvað ég á að skrifa um… það er svo langt síðan ég bloggaði síðast að ég man ekkert alveg allt sem ég er búin að vera að bauka síðan þá!!!    En allavegana eitt sem stendur alveg uppúr síðan síðast og það er heimsóknin okkar til Svavars og Rakel þarsíðustu helgi, Ása systir og Baldur voru þanra líka, þetta var alveg frábært tími og ættum við systkynin að gera þetta mikklu oftar.. En jámm við stelpurnar/konurnar fórum að versla og á meðan fóru gaurarnir í gólf og skemmtu allir sé bara ljómandi. Svo daginn eftir var farið að versla ennþá meira og var nú H&M tekin í nefið og fórum við létt með það. Um kvöldið eldaði Svavar frábæra nautasteik og alles og fórum við að spila, byrjuðum á mr&ms sem er svona paraspil sem gengur út á það hversu mikið þú veist um makann þinn.. og finnst mér það alveg frábært að ég og Siggi rústuðum þeim í þessu…. og við bara búin að vera saman í 2 og ½ mán…. hehee svo fórum við líka í drykkjuspil og er það svona teningaspil sem heitir litla mæja eða stór eða e-ð þannig… og Ása hélt ALLTAF að Siggi væri að ljúa að sér.. og var þetta alveg ótrúlega fyndið og gaman.
Svo núna er byrjuð ný önn í skólanum og er ég nún í Dans, Spinning og Karate/Júdó og er þetta bara alveg geggjað gaman þá sérstaklega júdó fíla mig í tætlur þar… um helgina var svo tekið á því á djamminum, jólabjórinn frá TUBORG var að koma og var ókeypis á Kreisý Deisý og jámm drukku sumir of mikið og aðri ennþá meira… hehe  en bara gaman af því en ekki daginn eftir hehe  svo var bara farið aftur út á laug. Sumir EDRÚ aðrir ekki…  svo á sun. þá var svo geggjað gott veður að við Siggí fórum út að hjóla og hjóluðum af okkur rassinn  sem er ekki gott… bara smá rasssæri í gangi!!!  Hehe  
En jæja ég er að fara í mat og hef ekki tíma fyrir frekara blogg í bili!!!!  
Hafið það gott…  þangað til næst!
                                                                                                Mýzla

» 6 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 13:15:35 / myzlan

Síðasta vika í hnotskurn....

Ég er búin að vera svo ótrúlega löt við að blogga núna reyndar búið að vera mjög mikið að gera í skólanum..

helgina 12 -14 Okt. voru ólimpíuleikar hérna í skólanum og komu "gamlir" nemendur reyndar bara frá því í jan - júlí og héldu þessa leika og svoru í keppninni með okkur. Þetta var hin mesta skemmtun og skaut ég úr byssu í fyrstaskpiti og vonandi ekki í það síðasta... ótrúlega gaman... svo á laugardagskvöldinu var svaka partý hérna, leikunum var slitið með svaka partýi og húllumhæji... Sigginn kom líka aftur út þetta kvöld og var það alveg frábært að fá hann það var reyndar alveg ótrúlega fyndið þegar hann kom inn í sal þar sem partýið var þá bara klöppuðu allir og bar skræktu... alveg eins og hann væri bara kóngurinn í skólanum.. það var svolítið fyndið! Nefndi ég það að Sigginn færði mér líka þennnann stóra og flotta blómvönd þegar hann koma... úff hvað ég fór hjá mér marr...

Sun 14 Okt. Fundur í fundaherberginu... kannarar að koma skilaboðum um komandi viku til okkar. Skilaboðin voru þau að okkur var skipt í 4-6 manna grúppur af handahófi og áttum við að vera búin að yfirgefa skólann ekki seinna en 10:00 daginn eftir og máttum ekki snúa aftur í skólann fyrr en 30 tímum eftir það eða um 16:00 daginn eftir... og fyrir þessa ferð var okkur skaffað um 125kr.Dk. per. manneskja. Ég var í hóp með Jesper, Mikkel og Silje og ákváðum við að fara á puttanum bara eins langt suður og við gætum á þessum tíma... Við tókum með tjald og svefnpoka og lögðum af stað í langferð! Þetta gekk brösulega til að byrja með, var erftitt að fá far, en svo kom strákur sem var að fara tilÁlaborgar og tók okkur uppí og var meðalhraðinn 180 og leist okkur ekki alveg á blikuna... hann hennti okkur út á bensínstöð og þá tók sko biðin við... við vorum í álaborg í um 4 tíma rúma... og vorum að gefast upp þegar annar ungur maður rennir að okkur og bíður okkur far til Randers og við þyggjum það auðvitað. Svo þegar við komum til Randers verslum við kvöldmat í Nettó og förum svo uppá veg og húkkum okkur far til Århus þar sem við endum ferðalagið og komum upp tjaldinu okkar. Daginn eftit ákveðum við einnig að húkka okkur far heim því að tveir af krökkunum höfðu ekki takið vilcardið sitt með sér í ferðina til að fara í lestina! Við ákveðum að splitta okkur upp, vera bara tvö og tvö því það sé auðveldara að fá far þannig.. jújú það virtist vera rétt og gekk vel að komast heim, við notu'um 5 bíla ég og minn partner, frá Århus til e-n stað sem ég man ekki hvað heitir, frá houm til Randers og einmitt þá vorum við handtekin af löggunni því við vorum að húkka far á HRAÐBRAUTINI sem er víst bannað... við hlóum svo mikið að löggann varð svolítið pisst og sagði að þetta væri EKKI fyndið heldu stórhættulegt og ef að við voguðum okkur aftur uppá hraðbraut myndi hann stinga okkur inn... hehe jamm ég er bara svaka glæpon í Dk. svo fengum við far frá Randers til Hobro og þaðan til Álaborgar og tókum lestina heim þaðan!! Þetta var alveg frábært ferðalag í allastaði held ég bara

Vikan 15 - 21 okt. mán og þrið fóru alveg í þetta ferðalag. Á miðvikudaginn og fimmtudaginn átum við svo valið um það hvort við vildum lesa bók, mála eða fara í svona dekur. Við Siggi fórum að mála og vá hvað það er róandi að sitja og mála við góða rólega tónlist! Svo reyndar eftir hádegi á fimmtudaginn fóru allir í svona dekur, það var rosalega gott! Svo á föstudaginn vorum við að æfa dansinn okkar þvi við áttum að sýna hann núna um helgina og gekk æfingin það vel að við vorum bara búin í skólaum um 13:00 og ákváðum við þá að skella okkur til Álaborgar og var planið að fara í Dýragarðinn sem var þá lokaður þannig að við fórum bara í keilu og leisertak og svo fínt út að borða... og fórum svo bara heim með hálf 12 lestinni! Svo á Laug. þá var vaknað um 10. leitið gúffað í sig morgunmat og voru tekin TVÖ rennsli á sýningunni okkar og svo haldi til Århus þar sem við áttum að sýna í hálfleik Dana og Frakka í meistaradeild kvenna.... þetta gekk alveg otrúelga vel og rúlluðum við upp þessum svokölluðu klappstírum sem voru þarna... þær hlaupust bara á brott með skottið á milli lappanna... hehe en jámm þetta var alveg ótrúlega gaman... Svo í gær komu 8 nýjjir nemendur í skólann og ný önn byrjaði í dag.. og byrjaði hún það vel að ég er bara VEIK!!! ekki gaman...

Jæja þetta er orðið alltof langt hjá mér... þanngað til næst Mýzla


» 10 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 14:43:48 / myzlan

International...

hvað er það að vera international??   mikið búin að vera að spá í þessu síðustu daga!!  ég er nefnilega international student... eða svo er mér sagt... og það virðist vera sem svo að þeir sem séu þannig séu bara aðal trúðarir í skólanum... eða allavegana að kannarans mati... hann er alltaf að reyna að fá okkur til að gera okur af algjörum fíflum svo að danirnir geti hlegið af okkur... og hann segir það bara alveg blákallt að hann vilji það að við lítum arsnrlega út svo að fólk geti hlegið!!!  mér finnst það bara ekkert gaman sko.... það er nóguerfitt að vera í þessum skóla félagslega séð og finnst mér alveg óþerfi að gefa þessu andskotans dönum virkilega færi á því að gera grín af okkur...
Einmitt í þessum skóla eru alveg tvær grúppur... eða kannski þrjár... það er allavagana DANIRNIR, svo international studentar og svo blandið og inni í því eru allir neima danirnir...
ein selpa spurði mig um daginn... hvvaaaa akkurru hata danirnir ykkur?? og ég alveg... HA!!!!8| og hún bara þið eruð öll svo indæl að ég bara skil þetta ekki....  jamm þar fékk maður það á hreynt að svona öruglega 98% af dönunm í skóanum hérna er illa við mann og maður finnur það alveg... en jamm ég er bara svo ógeðslega jákvæð alltaf núna að ég bara læt það ekkert bögg mig og mér finnst það bara frábært....
Það er greynilega að koma vetur hérna í Dk. það var frost í jörðu þegar ég fór út í Adventure í morgun og fraus ég alveg frá toppi til táar og er rétt að ná hita í kroppinn á mér núna... ekki gott!!!  (þetta var sko kl 08:00 í morgun!!!!) 
Var að koma úr sundi... var að synda 1km í power-cup og var ég bara 21:45:00 0g var ÖNNUR i marg...ógó happý með það!  svo síðasta fös var líka powre-cup, þar vorum við að synda 400m hjóla 12,5km og hlaupa 3km allt í þessaru röð... þannig að þið geið rétt ímyndað ykkur hvað marr var SEXY á sundbolnum á hjólinu.... djók ég fór nú bara í fötin mín yfir... datt ekki í hug að vera bara á bolnum hjólandi út um allann bæ!!!!  hehe  en það gekk líka alveg ótrúlega vel var að fjórða af stelpunum í mark!!!
jæja það styttist óðum í jólin... vá hvað ég get ekki beðið að koma heim... sakna allra svo ógó mikið... ég fá voðalega oft heimþrá núna... sérstaklega þegar Siggi er ekkert hérna úti og ég veit EKKERT hvenær hann kemur út!!!
Það bjargar mér samt alveg að hafa Svavar og sjölsk hérna úti, frábært að koma til þeirra, vildi að þau væru að flytja til ísl bara um jólin úfff hvað ég á eftir að sakna þeirra svo þegar ég kem heim.... en þá hef ég bara GÓÐA ástæðu til að fara til danmerkur... hehe 

en jæja ég þaf að fara að tala við Anders umsjónakennarann minn...

                                                                                        Mýzla


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 10:35:15 / myzlan

Handbolti...

...í gær fórum við internatsjonal-krakkarnir á handbolta leik hérna í Dk. fórum til Fredrikshavn að horfa á AArhus spila á móti Fredrikshavn, þetta var leikur um það hvort liðið myndi falla niður í 1 deild. Af hverju er svo leiðinlegt að horfa á kvennaboltann??  þetta var alveg ótrúlega leiðinlegt.. og er ég bara frekar fúl yfir því að hafa eytt alveg næstum 5 tímum í þetta vesen...   en svo aftur á mót veit ég ekkert skemmtilegra en að horfa á okkar frábæra ísl. landslið keppa í þessari sömu íþrótt... ég missi mig alveg yfir leikjunum hjá þeim... öskra og stappa... og ég er bara mikið að spá í því að fara til Noresg í Feb. og horfa á þá spila á HM/EM man ekki alveg hvort það er... hehe... en það væri alveg frábært að fá tækifæri til þess að fara og horfa á þá.... það er bara draumurinn...  hehe
Annars þá er allt bara alveg jetta brrraaa hérna ég var í adventure í gær og við löbbuðum upp á svona vatnsturn og vorum látin síga niður og þetta svou sko 32m... ég var að pissa í mig... sem því þegar maður lét sig bara la-gó fram af brúininni var þetta bara frábært og mig langar bara að fara aftur... þannig að ég held að ég sé að vinna bug á lofthræðslunni minni.. sem er gott...
Svo er að koma helgi.. og ég er að fara til Svavars og fjölsk. og það er alveg frábært... elska það að vera hjá þeim... og svo er Siggi minn líka VONANDI að koma á laug. henn er búinn að vera heima á ÍSL í TVÆR vikur...  oj hvað ég er abbó út í hann samt...  en líka fínt að vera hérna.. en mig langar í mömmu mat... ekki þetta sem er hérna...  
úfff maður kemur náttlega bara nánast heim í jóasteikina... úfff hvað það verður étip mikið þá... mamma og pabbi fá örugglega bara sjokk.... úff ég á bara eftir að heyra mig fitna þessi jól... ekki nema ég verði bara ógó góð og fari út að hlaupa.... hehe 
veit svo sem ekkert hvað ég á að skrifa... er í "eyðu" og hef ekkert að gera... kannski ég labbi bara í bæinn til að gera e-ð...  svo er það bara POWERSPOT á eftir... bundið dekk í sigbelti og þú látinn hlaupa og hoppa og atast e-ð með það....úfff get ekki beðið...

jæja hef ekkert að segja...

                                                                          Myzla  


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19